Góðan og blessaðan daginn. Eins og sést hefur að þá var ég búin að gleyma því að blogga í þónokkurn tíma. Lífið gengur bara sinn vanagang hérna í Eyjum. Ég orðinn opinber eymingi sem ekkert má gera, Guðgeir enn á sínum golfvelli og Bergur leikskóladrengur.
Ég var nú reyndar að koma úr vikuferð frá Reykjavík og mikið er óskaplega leiðinlegt þar. Var að koma úr staðlotu í skólanum og Bergur fékk að fara með og var mættur í háskólann aðeins tveggja og hálfs árs gamall. Reyndar fékk hann að horfa á teiknimyndir nánast allan tímann, en ég efast ekki um annað en hann hafi lært eitthvað á þessu.
En auðvitað var best í heimi að komast heim á eyjuna fögru þó svo að sjóferðin hafi nú ekki farið of vel í mann. Aldeilis mikil geðveiki að vera með allan þennan slatta af krökkum sem voru á leið í allskyns ferðalög til eyja og ekki gera ráð fyrir gistingu handa öllum. Þau voru meira og minna veik allan tímann og enginn til að hugsa um þessi grey. Þá verður lífið örlítið ljúfara þegar Bakkafjara verður að veruleika. Hvenær sem það nú verður.
Hef annars alveg óskaplega lítið að segja. Krakki númer tvö ætlar aldeilis að láta hafa fyrir sér því hann heldur fyrir mér vöku mjög mikið og meðgöngukvillarnir mun verri en hjá Berg. Styttist samt í hann því það eru "bara" 17 vikur eftir.
Kv. Steran
P.s. Guðgeir er byrjaður að blogga og slóðin á hans blogg er: www.gudgeirjons.blogspot.com
19. október 2008 klukkan 15:18
Esther Bergsdóttir 4 athugasemdir
Héðan úr eyjunum er bara ljúft að frétta. Ósköp lítið um að vera og það styttist óðum í þjóðhátíðina. Goslok búin (reyndar rólegustu goslok sem ég hef upplifað) og lítið að gera nema bara bíða.
Er að vinna eins og brjálæðingur og næstu 6 vikurnar kem ég til með að búa nánast á sambýlinu af sökum mikillar vinnu. Því er gott að eiga góða að, því leikskólinn er lokaður og þessvegna er alltaf verið að redda sér pössun.
Ætla að fara að henda inn almennilegu bloggi, en núna er ég í vinnunni og því ekki tími til. Ætlaði bara að láta ykkur vita að því að ég er á lífi.
P.S komið nýtt á barnalandið hjá Berg :)
Steran
14. júlí 2008 klukkan 10:03
Esther Bergsdóttir 1 athugasemd
Heil og sæl heillin. Haldiði ekki bara að ég hafi gleymt því að ég væri með blogg. Hvursu vitlaus þarf maður að vera. Hef ekki oft skilið fólk sem bloggar daglega. Það fólk mætti alveg gefa mér klukkutíma á dag af sínum tíma. Ég virðist hreinlega bara alltaf busy.
En núna eru tengdaforeldrarnir komnir til okkar ásamt Stefáni Mána og Arnari Frey. Ofboðslega gaman að fá þau hingað í heimsókn, því ólíkt mörgum tengdaforeldrum að þá eru þau bæði alveg ofboðslega fín. Maður hefur oft heyrt vini eða kunningja koma með einhverjar hryllingssögur af tengdó en ég bý greinilega svo vel að eiga engar þannig sögur. Svo að þeir sem vilja hitta tengdó verða bara að koma í heimsókn um helgina (mikið ætla ég að vona að þau lesi nú bloggið mitt því þá er ég sko aldeilis búin að vinna mér inn mörg prik ;) ).
Er vinnandi eins og er. Á Sambýlinu í Eyjum. Frábær vinnustaður. Hef verið að spá og spekulera, en þið sem þekkið mig vitið kannski að stefnan hjá mér er að byrja í fjarnámi í kennó í haust. Það hefur svo verið að breytast aðeins áhugasviðið svo að nú er pælingin að læra þroskaþjálfann í stað hefðbundins grunnskólakennaranáms. Hvernig haldið þið að ég taki mig út sem þroskaþjálfinn Esther?? Ég hef allavegana fundið það á þeim stutta tíma sem ég hef unnið hérna að þessi starfsvettvangur hentar mér mjög vel. Mér líður mjög vel í vinnunni og hver vakt er alltaf tilhlökkun þó svo að vaktavinnan geti auðvitað aðeins tekið á taugarnar og heimilislífið.
En nóg af rausi og tauti. Hvað er að frétta af þér??
Endilega skilja eftir spor í gestó eða komment.
Steran over and out :)
09. maí 2008 klukkan 00:39
Esther Bergsdóttir 3 athugasemdir
Jæja já. Þið segið það. Hér er á ferð einn lélagsti bloggari sögunnar, Esther Bergsdóttir. Sit hér í sófanum í foreldrahúsum þar sem ég get ekki hreyft á mér andlitið vegna þess að við skötuhjú erum hér græn í framan í orðsins fyllstu merkingu. Erum með maska í andlitinu til þess að hreinsa húðina. Er einnig með handklæði á hausnum því að mamma var að lita á mér hárið. Þessi blessaða útlitsdýrkun er alveg að fara með landann held ég bara. Var orðin alveg ótrúlega ljót og sjúskuð svo að ekki veitti af þessari meðferð hérna frá henni elskulegu móður minni. Hef oft grínast með það að hún ætti að opna snyrtistofu hérna heima ef hún væri ekki alltaf svona upptekin.
En nóg af mér, hvað er að frétta af ykkur?? Hahaha.
Erum flutt í Áshamarinn. Ef þið viljið þá eruð þið meira en velkomin í heimsókn. Alltaf til kaffi og með því hjá okkur.
Héldum barnaafmæli í gær í okkar stóru íbúð og það komu hátt í 30 manns í afmælið í okkar stóru íbúð. Gekk samt mjög vel og Bergur aldeilis sáttur við lífið og tilveruna.
En já útlitsdýrkandi númer eitt (ég *hóst hóst*) er að fara að þrífa á sér andlitið. Vonandi verð ég eitthvað sætari þegar þið sjáið mig næst.
Steran over and out
31. mars 2008 klukkan 20:15
Esther Bergsdóttir 3 athugasemdir
Góða kvöldið. Héðan af Norðurpólnum er allt gott að frétta. Vorum fyrst að komast útúr húsi um 3 leitið í dag síðan á laugardagskvöldið. Búið að vera ógeðslegt veður og þá eiginlega vægast sagt. Svo er víst öðru eins spáð næsta fimmtudag svo þá er um að gera að byrgja sig upp af mat og fleiru. Hahaha.
En annars kom önnur smá rispa í loðnunni. Búin að vera á smá vöktum sem er auðvitað bara jákvætt fyrir budduna. Fórum á laugardaginn við skötuhjú að kaupa parket svo að þetta verður innan skamms vonandi stórglæsileg íbúð :)
Styttist svo í 2 ára afmælið hjá drengnum og þá eru páskar og síðan er eiginlega sumarið bara komið. Er núna að vinna hjá Gummu systur mömmu í Barnaborg og að taka einhverjar rispur í loðnunni. Um miðjan apríl fer ég svo líklega að vinna í Vaktavinnu á Sambýlinu og þar verð ég líklegast út sumarið. Svo í haust þá byrjar fjarnámið mitt í kennó. Samhliða því hef ég sótt um kennarastöðu í grunnskóla Vestmannaeyja. Sótti um að fá starf sem forfalla/afleysingakennari svo að núna krossa ég bara puttana og vona það besta ;)
En ég ætla að segja þetta gott í bili. Skella mér í heitt bað og vonast til að fá símhringingu frá Vinnsló sem fyrst.
Kv. Steran
03. mars 2008 klukkan 21:09
Esther Bergsdóttir 3 athugasemdir
Mínar helstu fréttir eru þær að við skötuhjú erum orðnir stoltir fasteignaeigendur. Keyptum okkur íbúð sem stendur við Áshamar, nánar tiltekið númer 75. Mjög sæt blokkaríbúð á jarðhæð. 3 svefnherbergi og allt voða kósý bara. Fáum líklega afhent eftir helgi svo að spennan magnast bara :)
Loðnan aðeins búin að gera vart við sig, sem hafði í för með sér nokkrar vaktir fyrir mig sem gefur mér fínt í aðra höndina. Mamma er best og er með drenginn á meðan ásamt því að vinna fyrir mig og þá passar amma Esther. Gott að eiga góða að skal ég ykkur segja.
En hef ekkert meira að segja í bili. Næsta blogg verður vonandi skemmtilegara.
Stera
26. febrúar 2008 klukkan 01:00
Esther Bergsdóttir 4 athugasemdir
Já þið heyrðuð rétt því það er að koma helgarfrí. Í mínu barnlausa helgarfríi ætla ég til Reykjavíkur að hitta kærastann minn. Sem ég er ekki búin að hitta í næstum því 2 vikur og þetta eru sko búnar að vera mjög erfiðar vikur þar sem skapið í minni er sko búið að rjúka upp og niður. Erfitt að vera í fjarbúð þegar maður er búinn að eyða nánast hverjum einasta degi með honum síðan í maí í fyrra. Ég þakka bara fyrir að hafa hana Andreu mína hérna, hún er sko búin að stytta mér stundirnar með góðu spjalli og kósý vinkonukvöldum. Hún kom einmitt með æðislega valentínusardagsgjöf til mín, en hún kom með heimabakaðar pönnukökur og sykur og kókómjólk. Guðgeir sagði að sín gjöf hefði týnst í póstinum, en við vitum öll hvað það þýðir ;) haha.
Hvað er samt málið með okkur Íslendinga og valentínusardaginn. Einhver fornfræg amerísk hefð sem við tökum hingað og flestir vita ekki einu sinni fyrir hvað valentínusardagurinn stendur. Enda hefur það oft verið sagt og ég fer ekki ofan af því að fólk er fífl. Svo einfalt er það bara.
Gerði annars heiðarlega tilraun til þess að drepa hana móður mína í gær. Sú tilraun tókst ekki, sem betur fer. Var að elda mexikanska súpu og missti mig aðeins í piparnotkun, en mamma slapp lifandi frá þessu banatilræði og vonandi verður þetta það síðasta sem ég sýni henni. ;)
Ég fór að hugsa áðan hvað ég átti skemmtilega æsku. Var úti að leika, fannst gaman í skólanum og var almennt bara mjög eðlilegur krakki (að mér fannst). Nema hvað svo byrjar barnung systir mín með einhverja rosalega gelgjutakta og eiginlega bara stæla og ég (hin ofurþroskaða stóra systir hennar) byrja náttúrulega að fussa og sveia yfir uppeldinu á barninu og stælunum og vorkenni bara mömmu og pabba, en síðan segir hún móðir mín mér það að ég hafi nú bara verið lítið skárri. Og ég er bara ekki frá því að hún mamma hafi einfaldlega rétt fyrir sér í þessu. Greyið konan að hafa lent í 2 svona "keisum". Ég hugga mig þó við það að yngri systirin sé mikið morgunfúlari en sú eldri.
En nóg um raus og taut. Komið langt fram yfir háttatíma og hann (hlaupa)Bóli minn ekkert sá kátasti yfir svefntímann af sökum kláða að þá neyðist ég sennilega til að fara í bólið og knúsa hann aðeins.
Bless í bili og gleðilegan valentínusardag í gær (þið vitleysingar sem fallið fyrir þessari úrkynjuðiu amerísku hefð)
Steran
15. febrúar 2008 klukkan 00:39
Esther Bergsdóttir 6 athugasemdir
Heil og sæl. Mikið óskaplega er ömurlegt veður úti. Dregur úr manni alla orku og allt fullt af neikvæðum straumum sem fylgja þessu leiðinda veðri. Ekki verið að gera sitt besta til að ryðja götur og fleira og því einungis fært ef þú átt jeppa eða annað slíkt farartæki.
Ég er búin að vera svona frekar leið þessa dagana. Enginn Guðgeir og það tekur svona smá á þessi fjarbúð. En hún mun bara standa til páska :) Stutt í páskana. Ég reyndar ætla að reyna að vera duglegri að rækta sambandið við vinina og ættingjana hérna og það gengur nú bara nokkuð vel. Ef það er eitthvað sem stoppar mann þá er það þetta blessaða veður!! :S
En jákvæðu fréttirnar eru þær að Guðgeir kemur á morgun. Bergur er í aðlögun á Sóla og líkar vel. Núna er maður aðeins byrjaður í átaki (ef maður er ekki alltaf í átaki eða megrun, þá veit ég ekki hvað).
Ég er búin að eignast lítinn frænda. Svenni og Eydís fengu lítinn prins í fyrradag og ég hlakka mikið til að sjá hann.
En þetta er ósköp dauft blogg hjá mér. Það næsta verður mikið dýpra, ég lofa því.
Over and out, Esther
07. febrúar 2008 klukkan 10:30
Esther Bergsdóttir 3 athugasemdir
Jæja þá. Það hlaut að koma að því. Á morgun er flöskudagur eða hjá okkur bara flutningsdagur. Pabbi kemur með flutningabílinn með fyrri Herjólfi á morgun og svo er þá bara að stafla í bílinn öllu sem mögulega kemst fyrir og restin fer í jepplinginn okkar :) Kíktum aðeins á Ægisborg áðan að kveðja aftur og sækja pínu dót sem gleymdist. Bergur hélt fyrst að ég ætlaði að skilja hann eftir og hélt smá í mig, en svo fór hann nú aðeins að knúsa og kyssa kennarana og börnin. Sæta barnið.
En núna eftir korter erum við Bergur að fara að kjósa. Eða ég allavegana. Bergur verður bara smá fylgihlutur ;) híhí.
Ég er mikið farin að hlakka til að fara á eyjuna fögru, en Guð hvað það verður skrítið að vera í burtu frá Guðgeiri svona lengi. Hittast bara um helgar og jafnvel ekki nema aðrahvora helgi :S En svona er bara lífið. Bergur ætlar til pabba síns á eftir og þá ætlum við sko að henda restinni af dótinu í kassa og reyna að klára að þrífa. Halldóra frænka ætlar að kíkja á okkur á eftir og svo ætlar Íris mágkona að vera svo æðisleg að koma og hjálpa okkur að klára.
En knús á línuna. Hlakka til að sjá ykkur öll í Vestmannaeyjum og jafnvel á djamminu á laugardag þar sem búið er að bjóða okkur skötuhjúum á Þorrablót :)
Steran
31. janúar 2008 klukkan 11:49
Esther Bergsdóttir 2 athugasemdir
Gott ef það er ekki bara bjórkvöld í kvöld. Málið er að það eru flutningar næstu helgi og Kristín frænka að fara að flytja (vonandi tímabundið haha) til Spánar. Svo við frænkurnar ætlum á dansiball í kvöld :) Guðgeir minn (hljómar þetta örugglega ekki væmið og klysjukennt??) ætlar að vera heima með barnið.
Er eins og er að fylgjast með laugardagslögunum og hún Erna Hrönn vinkona mín bara í 2 atriðum af 3. Enda er stúlkan snillingur á sínu sviði plús það að vera alveg frábær karakter og eiga yndisleg börn. Hefur alltaf verið mín fyrirmynd.
Hún Andrea vinkona er líka byrjuð að blogga á bloggar.is og hún skoraði þar á mig í smá blogg keppni, sem gengur út á það að sú sem er virkari bloggari og duglegri að gera eitthvað fyrir síðuna sína fær kippu og verður nánari dagssetning ákveðin síðar á ársfundi hljómsveitarinnar. Svo kom hún með þá snilldartillögu að byrja með hljómsveitina aftur undir nafninu Óráðlagður kvöldskammtur ;) Það er spurning hvort eitthvað verði úr því. Nei ég hugsa að við hlífum nú fólki.
En annars er lítið að frétta. 5 vikur síðan ég fór að djamma í Reykjavík og þá var það einmitt með Kristínu frænki. Ólafi Arnari, Daníel Geir, Andreu, Thelmu og Ástu Salný ;) Það var sko ótrúlega gaman og ég reyni að setja inn myndir frá því á morgun. Erum reyndar boðin í barnaafmæli hjá Mikael Má, en Bergur er boðinn í 2 afmæli svo að það verður sko aldeilis að skipuleggja sig.
En nú er fyrsti bjórnn runninn niður og kannski kominn tími til að fara að græja sig aðeins. Erfitt að líta vel út þegar samanburðinn er Kristín svo ég ætla að gera mitt besta ;)
Bless í bili
26. janúar 2008 klukkan 21:37
Esther Bergsdóttir 4 athugasemdir